Þá er ég komin heim til Íslandsins góða, byrjuð að vinna og reyna að venjast hinu venjubundna íslenska lífi þ.e. æfa,vinna,æfa,sofa :) Tók mig nokkurn tíma að aðlagst þessu, hef þurft að fara að sofa fyrir kl. 22 fyrstu vikurnar haha en þetta er allt að koma.
Bjarni minn er líka kominn heim þannig að ég þarf ekki að kvíða fyrir árs fjarbúð...ekkert nema gott um það að segja. Bjarni er reyndar ristarbrotinn og gengur um á hækjum þessa dagana, þannig að ég er hjúkka 24/7.
en allavega þetta er síðasta bloggið, ég opnaði bloggið þegar ég flutti út til að vinir og ættingjar ættu auðveldara með að fylgjast með okkur og kasta á okkur kveðju...núna erum við komin heim þannig að þið hringið bara ef þið viljið ná í mig :)
Hafið það best...takk fyrir öll commentin...
knúsBegga
02 maí 2007
sumar.is
Ég er sko búin að standa mig vel í dag...algjörlega eins og sönnum Íslendingi sæmi
r er ég búin að sleikja sólina eins og ég muni aldrei sjá hana aftur, er auðvitað rauðari en karfi núna...jamm veðrið er gjörsamlega yndislegt hérna í DK þessa dagana, ég trúi ekki að ég sé að yfirgefa þetta dásemdarveður og fara heim í rokið !!!! ég held samt ennþá að það verði rosa gott sumar heima á Íslandi því vetur og sumar frusu saman (eða eitthvað álíka) og það á að vera boð um gott sumar ÉG TRÚI ÞVÍ, hef reyndar alltaf verið auðtrúa en bíttar ekki.
r er ég búin að sleikja sólina eins og ég muni aldrei sjá hana aftur, er auðvitað rauðari en karfi núna...jamm veðrið er gjörsamlega yndislegt hérna í DK þessa dagana, ég trúi ekki að ég sé að yfirgefa þetta dásemdarveður og fara heim í rokið !!!! ég held samt ennþá að það verði rosa gott sumar heima á Íslandi því vetur og sumar frusu saman (eða eitthvað álíka) og það á að vera boð um gott sumar ÉG TRÚI ÞVÍ, hef reyndar alltaf verið auðtrúa en bíttar ekki.Ég kem heim á sunnudaginn (að öllum líkindum) og verð heima í næstum allt sumar. Ég hlakka rosa til að byrja að vinna, hanga með vinkonunum, fara í
útilegur, grilla, drekka íslenskt vatn, fara í sund, hafa bjart allan sólarhringinn og og og... allavega er mitt helsta markmið fyrir sumarið að ganga upp Esjuna, hef ekki ennþá gert það en talað um það í mörg ár núna - Ég veit alveg hvaða píur ég dreg með mér í það, Bjarney og Hafrún alvanar því að ganga þarna upp og Bjarney víst að hlaupa þar líka, en allavega upp skal hvernig svo sem ég fer að því.
útilegur, grilla, drekka íslenskt vatn, fara í sund, hafa bjart allan sólarhringinn og og og... allavega er mitt helsta markmið fyrir sumarið að ganga upp Esjuna, hef ekki ennþá gert það en talað um það í mörg ár núna - Ég veit alveg hvaða píur ég dreg með mér í það, Bjarney og Hafrún alvanar því að ganga þarna upp og Bjarney víst að hlaupa þar líka, en allavega upp skal hvernig svo sem ég fer að því. Fór samt heim síðustu helgi í ferminguna hennar Elmu, það var æði og þvílíkt flott
veisla með æðislegum mat og yndi að hitta ættingjana mína. Ferðin var hins vegar ansi stutt ég kom á laugardegi og fór aftur mánudagsmorgun. Ég fór m.a. að skoða íbúðina okkar Bjarna sem verður tilbúin í lok september og spennan magnast, gaman að spá í öllu sem þarf að spá í eða svona þangað til við þurfum að taka allar ákvarðanirnar, það er meira en að segja það!!!
veisla með æðislegum mat og yndi að hitta ættingjana mína. Ferðin var hins vegar ansi stutt ég kom á laugardegi og fór aftur mánudagsmorgun. Ég fór m.a. að skoða íbúðina okkar Bjarna sem verður tilbúin í lok september og spennan magnast, gaman að spá í öllu sem þarf að spá í eða svona þangað til við þurfum að taka allar ákvarðanirnar, það er meira en að segja það!!!annars var einhver golfpía sem fór holu í höggi um daginn og fékk dásemdar verðlaun fyrir það, nebbla ársbyrgðir af tyggjói...ég vildi að ég væri hún.
Begga
25 apríl 2007
Hitt og þetta
Þegar maður klárar skólann er maður mest fegin (yfirleitt) að losna við allt sem heitir verkefni + próf og stressið sem fylgir því.. en neiiiii ég er búin að vera stressuð í 2 vikur núna, þetta er bara orðið svona skilyrt viðbragð hjá mér (eða er ég að fara með e-a vitleysu Hafrún þú kannt þetta nú út í gegn) því þegar apríl/maí og nóvember/desember koma þá bara verð ég ósjálfrátt stressuð. Hvaða rugl er það!!! Þannig að þegar ég segi að ég finni til með ykkur sem eruð í próflestri og prófum núna, ÞÁ VIRKILEGA MEINA ÉG ÞAÐ hehehe :)
en jæja nú er 10 daga handbolta fríi að ljúka. Æfingar byrja aftur í dag og standa til 30. júní þá fáum við sumarfrí í 3. vikur. Þessi tími er ekki minn uppáhalds, enda oftast mikið um þrek og lyftingar, en þetta fylgir sportinu víst og yfirleitt gleymir maður því fljótt þegar upp er staðið, sérstaklega þegar vel gengur þá er það þess virði :)
annars eru stuðningsmenn Brøndby að gera allt vitlaust, en Brøndby hefur ekki unnið leik á Jótlandi núna í næstum ár og dropinn sem fyllti mælinn var 3-0 tap á móti neðsta liði deildarinnar Vejle en eftir þann leik tóku hörðustu stuðningsmennirnir sig til og brutu hurð og rúðu á leikmannarútunni. jamm þeir gera kröfur, getið lesið um þetta hér.
já þetta var hressandi blogg þar sem ég fer úr einu í annað...Svona fer stressið með mann maður heldur engri einbeitingu.

22 apríl 2007
22.apríl er virkilega góður dagur:)
Já það er eintóm gleði á okkar heimili í dag :) Silkeborg vann í dag 2 - 1 á móti Esbjerg eftir að hafa lent 1 - 0 undir og mistekist að skora úr vítaspyrnu þannig að það leit ekkert sérstaklega vel út hjá þeim, EN loksins tókst þeim að sigra.
Gleðin hjá okkur er þó aðallega vegna þess að VALUR VARÐ ÍSLANDSMEISTARI Í DAG jibbí til lukku með það strákar og allir valsmenn. Ekkert smá frábært. Við horfðum á leikinn á netinu og var maður nokkrum sinnum frekar stressaður um að Haukar myndu sigra en sem betur fer þá gerðist það ekki. Flott að koma með titil inn í nýja glæsilega valsheimilið :)
annars mest lítið að frétta af okkur. Ég er komin með vinnu heima á Íslandi í sumar og get ekki sagt annað en ég hlakki voðalega mikið til þess að byrja að vinna. Vonandi bara að maður muni eitthvað síðan úr náminu, en það hlýtur að rifjast fljótt upp.

Síðan 2 afmæliskveðjur, fyrst til Glingló minnar sem átti afmæli 17.apríl...Innilega til hamingju Eygló mín, vona að afmælispartýið hafi heppnast voða vel..hlakka til að hitta þig í byrjun maí og knúsa þig sæta...
og svo átti Kristófer litli krúsímús 2 ára afmæli 20.apríl, ég get ekki beðið eftir að knúsa hann þegar ég kem heim og sjá hvað hann er orðinn ótrúlega duglegur og víst rosa efnilegur markmaður :) þetta er ekkert eðlilega fljótt að líða allt saman...

Valsgleði kveðjur frá DK
Begga
15 apríl 2007
Handboltavertíðinni lokið
Já ótrúlegt en satt þá er síðasta leiknum hjá okkur í Århus lokið en við spiluðum í gær seinni leikinn á móti Sonderjyske og unnum 29 - 25, við höldum því sæti okkar í TOMS ligunni næstu leiktíð. Við tekur 10 daga frí hjá okkur sem er kærkomið og vona ég bara að veðrið verði jafn gott næstu 10 daga og það hefur verið núna um helgina, eða kringum 20°C :) Ég verð allavega að taka mig virkilega á ef ég ætla að ná henni Hröbbu minni sem tók heldur betur á því á fimmtudaginn eins og hún skrifar um á síðunni sinni :)
Eftir leikinn í gær fór ég heim með Árný og Fannari til Fredericia til að sjá nýju flottu íbúðina þeirra. Bjarni kom síðan til okkar frá Silke og var okkur boðið í rosalega góðan mat sem ég á pottþétt eftir að reyna að elda e-n tíma :)
Síðan er það leikur í dag hjá Bjarna á móti Viborg. Viborg er í 10 sæti með 22 stig en Silkeborg í sætinu fyrir neðan með 12 stig. Það segir sig því sjálft að þessi leikur er afar mikilvægur því EF þeir sigra Viborg í dag og síðan Vejle á miðvikudaginn og Viborg tapar þá, þá eru einungis 4 stig í Viborg...en það er alltaf þetta stór EF sem þarf að hafa í huga, en krossum fingur, vonum það besta og síðan kemur þetta í ljós.
Þið hafið örugglega flest horf á fótboltaleik eða heyrt um leik þar sem allsber karlkyns áhorfandi hleypur inn á völlinn. Yfirleitt er þá myndavélunum beint eitthvað annað og 10 verðir hlaupa á eftir viðkomandi til að koma honum sem fyrst burt af vellinum. Í gær vorum við semsagt að horfa á restina af leik í dönsku deildinni þegar stelpa svona ca.25 ára hleypur inn á völlinn í G-streng einum klæða voða ánægð með lífið og júllurnar náttla á fleygiferð. Hún fékk að sjálfsögðu mikið klapp og blýstur frá áhorfendum og ekki nóg með það heldur þá hljóp eiginlega enginn vörður á eftir henni og myndavélin var límd við hana allann tímann og atvikið marg endursýnt eftir leikinn.....já sú fékk athygli og fær eflaust næstu vikur :) Spurning um að prufa þetta á leiknum hjá Bjarna á eftir hver veit nema þetta kveiki í Silkeborg, allavega hafði það góð áhrif á ónefndan markmann í ÍR hér um árið þegar hann gekk óvart inn í vitlausan klefa í valsheimilinu og þ.a.l. inn á leikmann í mfl.kvk Val sem var allsber, herma fréttir að hann hafi aldrei spilað jafn vel....hehehehe niiiiiii ég held ekki..
Hafið það best og það eru allir velkomnir í heimsókn til okkar í veðurblíðuna
knús á línuna Begga

10 apríl 2007
Skemmtilegir páskar búnir
Fjölskyldan hans Bjarna fór í dag frá okkur eftir mjög skemmtilega helgi. Þau komu á fimmtudaginn og fórum við öll saman á leikinn hjá Bjarna á Parken á móti FCK. Sá leikur endaði 3 - 1
fyrir FCK eftir að Silkeborg komst 1 - 0 yfir. Við fórum einnig á leikinn í gær þar sem B og félagar kepptu á móti Álaborg og þvílíkur markaleikur, heil 10 mörk skoruð !!! en því miður aftur tap hjá SIF 6 - 4, eftir að þeir komust 2 - 1 yfir, en svona er þessi bolti víst, ekki allt eins og maður óskar sér.
fyrir FCK eftir að Silkeborg komst 1 - 0 yfir. Við fórum einnig á leikinn í gær þar sem B og félagar kepptu á móti Álaborg og þvílíkur markaleikur, heil 10 mörk skoruð !!! en því miður aftur tap hjá SIF 6 - 4, eftir að þeir komust 2 - 1 yfir, en svona er þessi bolti víst, ekki allt eins og maður óskar sér. Það var margt brallað meðan þau voru hjá okkur, við fórum t.d. í fótboltagolf sem ég og Ellert unnum eftir að ég fór holu í höggi :) haha maður verður að minnast á það auðvitað, enda það eina góða sem ég gerði, Ellert sá um að klára hinar holurnar fyrir okkur :) fórum einnig í minigolf, út að borða, málverkasýningu hjá einni í liðinu mínu, svo v
ar auðvitað tekinn verslunarleiðangur í Århus, við spiluðum mikið og svo lét ég rústa mér nokkrum sinnum í Buzz dííí hvað ég get orðið pirruð í þessum leik, keppnisskapið er alveg að fara með mig stundum !!!
ar auðvitað tekinn verslunarleiðangur í Århus, við spiluðum mikið og svo lét ég rústa mér nokkrum sinnum í Buzz dííí hvað ég get orðið pirruð í þessum leik, keppnisskapið er alveg að fara með mig stundum !!! Við borðuðum að sjálfsögðu yfir okkur öll kvöld, enda eiga páskarnir að vera þannig, en þau komu færandi hendi með íslenskan fisk, læri og lambasneiðar sem rann allt mjög ljúflega niður. Við fengum íslenskt páskaegg sent að heiman frá m&p og svo komu þau með annað þannig að það var nóg páskaegg fyrir alla :)
Þessi helgi var alveg æðisleg í alla staði, fyrir utan að veðrið hefði mátt vera betra - bara ekta íslenskt veður eiginlega allan tímann, en já það var yndi að hafa þau enda alltaf svo gaman að fá gesti til sín.
Svo smá að handboltanum en tímabilið klárast vonandi hjá okkur Århus píum um næstu helgi en þá spilum við umspilsleik nr. 2 á móti Sonderjyske, en við unnum fyrri leikinn núna á Sunnudaginn, þar sem ég fékk að spila 25 mín. Leikurinn var arfaslakur af okkar hálfu og vonandi að við náum að rífa okkur upp og
spila almennilega.
spila almennilega. Læt nokkrar myndir fylgja með og set síðan restina inn sem fyrst á læstu myndasíðuna mína.
ein afmæliskveðja svo í lokin en hún Lilja mín átti afmæli 7.apríl. Innilega til hamingju skvís, ég vona að dagurinn hafi verið súper góður og þú hafir haft það æðislega gott, sakn og knús til þín sæta mín. Ég vona að þið hafið haft það jafn gott og við um páskana
luvBÍH
03 apríl 2007
Hæ allir
Fyrsta stig SIF á heimavelli kom á sunnudaginn þegar þeir gerðu 0 - 0 jafntefli á móti Randers, mikilvægt stig en hefði auðvitað verið best að fá öll þrjú en þeir segja ekki nei við einu stigi. Sólin skein skært meðan á leiknum stóð og náði kellan sér meira að segja í rauðar kinnar :) ekki amalegt. Næsti leikur B og co er síðan á fimmtudaginn í Köben á móti FCK. Ég
ætla að fara til köben að hitta familíuna hans Bjarna og ætlum við síðan að sjálfsögðu að kíkja á parken á leikinn. Því miður er allt lokað í köben á fimmtudag þar sem þetta er skærtorsdag en það hefði verið gaman að geta skellt sér í tívolíið eða á strikið í eins og 1 - 2 búðir.
ætla að fara til köben að hitta familíuna hans Bjarna og ætlum við síðan að sjálfsögðu að kíkja á parken á leikinn. Því miður er allt lokað í köben á fimmtudag þar sem þetta er skærtorsdag en það hefði verið gaman að geta skellt sér í tívolíið eða á strikið í eins og 1 - 2 búðir.Fyrsti umspilsleikurinn okkar er síðan á sunnudaginn, á sjálfan páskadag, furðuleg tímasetning, en við keppum á móti Sonderjyske sem lenti í 3.sæti í 1.deildinni.
Annars eiga held ég allir afmæli í apríl og því ekki seinna vænna en
að byrja að drita niður afmæliskveðjum en Arna og Hera áttu afmæli á Sunnudaginn, til hamingju með það skvísur knús og kossar til ykkar og svo á Árný afmæli í dag :) Jibbí til lukku mín kæra knús og kremjur til þín.
að byrja að drita niður afmæliskveðjum en Arna og Hera áttu afmæli á Sunnudaginn, til hamingju með það skvísur knús og kossar til ykkar og svo á Árný afmæli í dag :) Jibbí til lukku mín kæra knús og kremjur til þín. Skrifa síðan eftir helgina þegar við erum búin að bralla fullt og vonandi fljóta e-ar myndir með.
Hafið það gott um páskana og borðið eins og 1 ekta Íslenskt páskaegg fyrir mig...
luvBegga
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)